- Auglýsing -
Staðreyndir eftir leiki 21. og næstsíðustu umferðar Olísdeildar karla í kvöld:
- Áfram munar tveimur stigum á þremur efstu liðunum, Val, FH og Haukum. Ekkert annað lið getur blandað sér í slag þriggja efstu.
- Þór, sem kom upp í deildina fyrir leiktíðina, er úr fallhættu og á auk þess möguleika á sæti í átta liða úrslitum. Þór getur aldrei orðið neðar en í 9. sæti vegna tveggja sigra á Selfossi sem er eina liðið sem getur jafnað Þór að stigum.
- Baráttan um fjórða sætið er áfram galopin en ÍBV og KA standa best að vígi. Von Aftureldingar um 4. sæti er veik en er þó fyrir hendi með sigri á Selfossi en þá verður ÍBV að tapa fyrir Val og KA og Þór að skilja jöfn í síðustu umferð.
- ÍR á enn þá möguleika á 11. sætinu og þar af leiðandi keppnisrétti í umspili um sæti í Olísdeildinni. ÍR á hinsvegar ekki möguleika á 10. sæti verði liðið jafnt Selfossi að stigum vegna óhagstæðari stöðu í innbyrðis leikjum.
- Stjarnan getur fallið rakleitt úr deildinni. Stjarnan á enn fremur möguleika á 10. sæti.
- Selfoss, Stjarnan og ÍR geta lokið keppni í deildinni með 11 stig hvert í þremur neðstu sætum.
- Eitt lið fellur úr deildinni og liðið í næst neðsta sæti tekur þátt í umspil við lið úr Grill 66-deildinni.
Úrslit næstsíðustu umferðar Olísdeildar karla í kvöld:
KA – FH 25:30 (12:14).
Valur – HK 33:26 (15:14).
Haukar – Selfoss 35:28 (17:16).
Fram – ÍBV 26:27 (14:14).
ÍR – Stjarnan 30:26 (13:13).
Afturelding – Þór 24:26 (15:13).
Staðan:

Leikir síðustu umferð fimmtudaginn 12. mars kl. 19.30:
Stjarnan – Fram.
HK – Haukar.
ÍBV – Valur.
Þór – KA.
Selfoss – Afturelding.
FH – ÍR.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
- Auglýsing -



