Haukar hafa framlengt samning sinn við hinn sigursæla og reynda þjálfara meistaraflokks kvenna Stefán Arnarson. Hann hefur undanfarin þrjú ár verið annar tveggja þjálfara Hauka. Hinn þjálfari Hauka, Díana Guðjónsdóttir, lætur af störfum í lok keppnistímabilsins.
Einn sá sigursælasti
Stefán er einn sigursælasti þjálfari landsins. Hann hefur orðið Íslandsmeistari sjö sinnum, jafn oft deildarmeistari og bikarmeistari sex sinnum. Hann hefur m.a. þjálfað kvennalið Fram, Vals, Víkings og nú síðast Hauka auk þess að vera landsliðsþjálfari kvenna 2001 til 2006. Á yngri árum var Stefán einn af öflugri fótboltamarkvörðum landsins.
„Við erum með ungan hóp og verkefnið er spennandi. Ég hlakka til að halda áfram að vinna með þessum öfluga leikmannahópi,“ segir Stefán í tilkynningu Hauka.
Haukar sitja í 3. sæti Olísdeildar kvenna og leika við Fram í undanúrslitum bikarkeppninnar á miðvikudaginn. Haukar unnu bikarkeppnina á síðasta ári.
Haukar tóku völdin í síðari hálfleik í KA-heimilinu



