Stjarnan lagði Fjölni, 30:27, í oddaleik í undanúrslitum umspils Olísdeildar karla í handknattleik í Hekluhöllinni síðdegis. Þar með fellur í hlut Stjörnunnar að mæta Herði í úrslitum umspilsins. Fyrsta viðureign liðanna er ráðgerð miðvikudaginn 8. apríl í Hekluhöllinni. Liðið sem fyrr vinnur þrjár viðureignir leikur í Olísdeild karla á næstu leiktíð.
Stjarnan var með frumkvæðið lengst af í oddaleiknum við Fjölni. Framan af var þó jafnt og lítið skoraði enda taugar leikmanna þandar sem einnig kom niður á spilamennskunni sem ekki var burðug á köflum. Stjarnan komst tvisvar í tveggja marka forskot þegar á leið. Staðan í hálfleik var 15:13, Stjörnunni í vil.
Framan af síðari hálfleik voru Stjörnumenn einu til þremur mörkum yfir. Fjölnismenn sóttu í sig veðrið upp úr miðjum hálfleiknum og komust yfir, 22:21 og 23:22. Í jafnri stöðu, 23:23, sjö og hálfri mínútu fyrir leikslok tók Fjölnir leikhlé. Segja má að leikmönnum liðsins hafi fallið allur ketill í eld eftir það. Stjarnan gekk á lagið á ný og vann sanngjarnan sigur.
Mörk Stjörnunnar: Ísak Logi Einarsson 7, Benedikt Marinó Herdísarson 5, Patrekur Þór Guðmundsson Öfjörð 5, Tandri Már Konráðsson 5, Jóel Bernburg 3, Hans Jörgen Ólafsson 2, Matthías Dagur Þorsteinsson 2, Daníel Karl Gunnarsson 1.
Varin skot: Sigurður Dan Óskarsson 11.
Mörk Fjölnis: Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson 7, Alex Máni Oddnýjarson 5, Óli Fannar Pedersen 5, Þorleifur Rafn Aðalsteinsson 4, Heiðmar Örn Björgvinsson 3, Victor Máni Matthíasson 2, Kristján Ingi Kjartansson 1.
Varin skot: Bergur Bjartmarsson 6.



