- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Stórleikur Donna í Flensborg

- Auglýsing -

Stórleikur Kristjáns Arnar Kristjánssonar, Donna, nægði Skanderborg AGF ekki til þess að slá út þýska liðið Flensburg í síðari viðureign liðanna í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik í kvöld. Donni skoraði 11 mörk í jafntefli, 33:33, í GP Joule Arena í Flensburg. Þýska liðið vann samanlagt 71:65 og lagði grunn að sæti í átta liða úrslitum með sex marka sigri í fyrri viðureigninni á Jótlandi fyrir viku.


Leikmenn Flensburg voru með tök á síðari leiknum í kvöld þrátt að jafntefli yrði niðurstaðan þegar upp var staðið. M.a. var Flensburg með þriggja marka forskot í hálfleik, 16:13.

Emil Jakobsen var markahæstur hjá Flensburg með sjö mörk. Johannes Golla og Lasse Møller skoruðu sex mörk í röð.

Fredrik Nils Olsson var næstur á eftir Donna með sex mörk.

Sigurinn nægði ekki Elverum

Tryggvi Þórisson og liðsmenn norska meistaraliðsins Elverum eru úr leik í útsláttarkeppninni. Þeim tókst að vinna Montpellier, 35:31, á heimavelli í kvöld. Það dugði skammt eftir 12 marka tap í fyrri viðureigninni í Frakklandi, 36:24.

Tryggvi skoraði ekki mark að þessu sinni.

Dominik Máthé og Péter Lukács skoruðu sex mörk hvor fyrir Elverum. Hugo Bryan Monte Dos Santos og David Balaguer Romeu voru markahæstir hjá Montpellier með fimm mörk hvor.

Í átta liða úrslitum mætast:
RK Nexe – THW Kiel.
Montpellier – Vardar.
Flensburg – Hannover-Burgdorf.
MT Melsungen – FC Porto.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -