- Auglýsing -
Sveinn Andri Sveinsson leikmaður Stjörnunnar verður áfram frá keppni næstu 12 vikur eftir að hafa gengið undir aðgerð á fæti. Handkastið segir frá þessu enda eru hæg heimatökin.
Sveinn Andri hefur ekkert leikið með Stjörnunni fram til þessa á leiktíðinni. Hann hefur verið einstaklega óheppinn með meiðsli á síðustu árum og lék t.d. aðeins nærri helming leikja Stjörnunnar á síðasta tímabilinu auk þess að vera nokkið frá þá mánuði sem hann var leikmaður Selfoss tímabilið 2023/2024.
- Auglýsing -



