- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Syrtir áfram í álinn hjá Erlangen – sumarsólin brosir við Magdeburg

Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði átta mörk og gaf fimm stoðsendingar í kvöld. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


Áfram syrtir í álinn hjá Viggó Kristjánssyni og samherjum í HC Erlangen í baráttu þeirra við að komast hjá falli úr þýsku 1. deildinni. Á sama tíma brosir sumarsólin móti leikmönnum SC Magdeburg sem komnir eru í efsta sæti deildarinnar eftir sigur á HC Erlangen, 34:23, í Nürnberg í kvöld. Magdeburg er stigi fyrir ofan Füchse Berlin og MT Melsungen en liðin mætast í Berlín á morgun.

Voru allt í öllu

Íslenskir landsliðsmenn voru allt í öllu í leiknum í Nürnberg. Ómar Ingi Magnússon skoraði níu mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Kristjánsson átta. Viggó Kristjánsson skoraði sjö sinnum fyrir HC Erlangen sem á tvo leiki eftir og situr í næst neðsta sæti. Bietigheim hefur jafn mörg stig í 16. sæti af 18 liðum en hefur leikið tveimur leikjum færra en Erlangen-menn.

Gísli Þorgeir gaf fimm stoðsendingar og Ómar Ingi fjórar. Viggó átti tvær stoðsendingar.

Elliði Snær Viðarsson var í sigurliði Gummersbach í kvöld. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Sóknarhugur í Schwalbe-Arena

Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach voru í sóknarhug í Schwalbe-Arena í kvöld. Þeir skoruðu 41 mark hjá leikmönnum Göppingen sem fengu ekki rönd við reist og töpuðu með 16 marka mun, 41:25.

Elliði Snær Viðarsson skoraði fimm mörk fyrir Gummersbach og Teitur Örn Einarsson tvö. Einnig gaf Teitur Örn þrjár stoðsendingar.

Ýmir Örn Gíslason var í leikmannahópi Göppingen en skoraði ekki og var heldur ekki vikið af leikvelli.

Andri Már Rúnarsson landsliðsmaður og leikmaður Leipzig. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Andri Már markahæstur

Andri Már Rúnarsson var markahæstur hjá Leipzig ásamt Lucas Krzikalla með fimm mörk í 15 marka tapi í heimsókn til hafnarborgarinnar Kiel, 39:24. Ekki létti það lærisveinum Rúnars Sigtryggssonar hjá Leipzig róðurinn að Luca Witzke var ekki með vegna meiðsla.

Undur og stórmerki

Þau undur átti sér stað í kvöld að Potsdam, sem hafði aðeins unnið tvo leiki af 30 leikjum í deildinni, vann Hannover-Burgdorf, 27:26, í Hannover. Tapið setur strik í reikning Hannover-liðsins sem er í harðri baráttu um sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð eftir vonin um meistaratitilinn rann leikmönnum liðsins alveg úr greipum.

Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf.

Erfitt hjá Ilic

Ekki gengur vel hjá Momir Ilic nýjum þjálfara Wetzlar við að hressa upp á gengi liðsins. Wetzlar tapaði í kvöld á heimavelli fyrir Lemgo, 26:20. Lemgo hefur gert það afar gott á tímabilinu.
Viktor Petersen Norberg náði sér ekki á strik með Wetzlar og skoraði til að mynda ekki mark.


Staðan í þýsku 1. deildinni:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -