- Auglýsing -
Aðeins er um helmingur aðgöngumiða eftir óseldur á fyrri landsleik Íslands og Svíþjóðar í handknattleik karla sem fram fer í N1-höllinni á Hlíðarenda 19. mars. Enn færri, eða um 40%, aðgöngumiða standa eftir á síðari viðureignina sem leikin verður í Kaplakrika laugardaginn 21. mars. Þessar upplýsingar komu fram á blaðamannafundi HSÍ í hádeginu í dag.
Töluvert af boðsmiðum
Ekki kom fram hversu hátt hlutfall þegar „seldra“ miða er boðsmiðar HSÍ til samstarfsfyrirtækja og annarra sem geta gengið að boðsmiðum vísum á hvern einasta landsleik. Telja má víst að töluverður hluti þegar seldra miða séu boðsmiðar, sé tekið mið af fjölda boðsmiða á landsleiki karlalandsliðsins á undanförnum árum sem farið hafa fram í Laugardalshöll.
- Auglýsing -



