- Auglýsing -
- Auglýsing -

Þórsarar sitja einir í efsta sæti eftir sigur á Ásvöllum

Kristján Páll Steinsson, markvörður Þórs, lét sér ekki nægja að verja 18 skot gegn Haukum í gær. Hann skoraði einnig tvisvar sinnum. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -


Þórsarar frá Akureyri tylltu sér í efsta sæti Grill 66-deildar karla í handknattleik í gærkvöld í framhaldi af öruggum sigri þeirra á Haukum2 á Ásvöllum í 5. umferð deildarinnar, 35:29. Þór var sjö mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik á Ásvöllum, 19:12.

Á sama tíma vann Hörður öruggan sigur á liði Handknattleiksbandalags Heimaeyjar (HBH), 41:29, í íþróttahúsinu á Torfnesi. Harðarmenn hafa sex stig eftir fjóra leiki, hafa tapað einum leik eins og Þórsarar. Akureyrarliðið hefur leikið einum leik fleira en vegna þess að níu lið eiga sæti í Grill 66-deildinni situr eitt þeirra yfir í hverri umferð.

Kristján Páll Steinsson, markvörður Þórs, átti afar góðan leik og það ekki í fyrsta sinn á keppnistímabilinu. Hann varði 18 skot auk þess að skora tvisvar sinnum.

Japanski landsliðsmaðurinn Kenya Kasahara var atkvæðamestur hjá Harðarliðinu í sigrinum á HBH með átta mörk. Kristófer Ísak Bárðarson fór mikinn í liði HBH og skoraði 11 sinnum.

Einn leikur fer fram í Grill 66-deild karla í dag. Selfoss tekur á móti HK2 í Sethöllinni á Selfossi klukkan 14. Fimmtu umferð lýkur á morgun með leik Fram2 og Víkings í Lambhagahöllinni klukkan 16.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

Haukar2 – Þór 29:35 (12:19).
Mörk Hauka2: Ísak Óli Eggertsson 7, Daníel Máni Sigurgeirsson 7, Ásgeir Bragi Þórðarson 5, Arnór Róbertsson 3, Bjarki Már Ingvarsson 2, Sigurður Bjarmi Árnason 2, Aron Ingi Hreiðarsson 1, Helgi Marinó Kristófersson 1, Jónsteinn Helgi Þórsson 1.
Varin skot: Ari Dignus Maríuson 4, Birnir Hergilsson 3, Jákup Müller 2.

Mörk Þórs: Brynjar Hólm Grétarsson 5, Arnór Þorri Þorsteinsson 4, Bergvin Þór Gíslason 4, Þórður Tandri Ágústsson 4, Oddur Gretarsson 3, Kristján Páll Steinsson 2, Halldór Kristinn Harðarson 2, Leó Friðriksson 2, Þormar Sigurðsson 2, Aron Hólm Kristjánsson 2, Hafþór Már Vignisson 2, Sigurður Ringsted Sigurðsson 1, Ólafur Malmquist 1, Heiðmar Örn Björgvinsson 1.
Varin skot: Kristján Páll Steinsson 18, Steinar Ingi Árnason 1.

HBstatz.

Hörður – HBH 41:29 (22:13).
Mörk Harðar: Kenya Kasahara 8, Admilson Furtado 7, Daníel Wale Adeleye 5, Endijs Kusners 5, Jhonatan C. Santos 4, Dejan Karan 3, Christos Kederis 3, Óli Björn Vilhjálmsson 3, Kenta Isoda 1, Dorde Colovic 1, Guðmundur Brynjar Björgvinsson 1.
Varin skot: Jonas Maier 8, Stefán Freyr Jónsson 5.

Mörk HBH: Kristófer Ísak Bárðarson 11, Elís Þór Aðalsteinsson 6, Anton Frans Sigurðsson 4, Hinrik Hugi Heiðarsson 3, Andri Snær Andersen 1, Jason Stefánsson 1, Adam Smári Sigfússon 1, Egill Oddgeir Stefánsson 1, Kristján Ingi Kjartansson 1.
Varin skot: Sigurmundur Gísli Unnarsson 10, Helgi Þór Adolfsson 1.

HBstatz.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -