Þýski markvörðurinn Philipp Seidemann hefur samið við handknattleiksdeild Selfoss til næstu tveggja ára
Seidemann er 23 ára gamall alinn upp í akademíunni hjá Leipzig. Hann kemur á Selfoss frá liðinu Plauen Oberlosa sem leikur í þýsku 3. deildinni. Þar áður lék hann með Glauchau Meerane og Dessau-Roßlauer.
„Við fögnum því að Philipp velji að taka sín næstu skref með ungu og efnilegu liði Selfoss í Olísdeildinni í vetur,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar Selfoss.
Selfossliðið tekur á móti Íslands- og bikarmeisturum Fram í 3. umferð Olísdeildar í Sethöllinni, annað kvöld. Ekki kemur fram í tilkynningu hvort Seidemann verður gjaldgengur liðinu í leiknum.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
Karlar – helstu félagaskipti 2025