Að öllu óbreyttu þá kemur norska kvennalandsliðið í handknattleik, undir stjórn Þóris Hergeirsson, saman í Danmörku á mánudaginn. Allur undirbúningur liðsins fer fram í Danmörku þar sem leikmenn hittast. Þetta staðfesti Þórir við handbolta.is í gær.
Þar með er ljóst að ef vel gengur hjá norska landsliðinu og það fer alla leið í undanúrslit munu leikmenn, þjálfarar og starfsfólk liðsins vera í Danmörku næsta mánuðinn. EM hefst 3. desember og lýkur sunnudaginn 20. desember.
Eftir að norska handknattleikssambandið dró sig út úr hlutverki gestgjafa mótsins á mánudagsmorgun var ákveðið að landsliðið æfði ekkert saman í Noregi fyrir mótið. Fyrirhugað fjögurra liða mót sem stóð til að færi fram í Bergen verður hugsanlega á dagskrá í Danmörku, eftir því sem fram kemur á heimasíðu norska handknattleikssambandsins. Auk landsliðs Noregs stóð til að landslið Danmerkur, Evrópumeistara Frakklands og Þýskalands yrðu þátttakendur í mótinu sem átti að hefjast á fimmtudaginn í næstu viku.
Leikið verður í úrvalsdeild kvenna í handknattleik á næstu dögum en ekki frá og með helginni. Síðari leikur undanúrslita norskur bikarkeppninnar fer fram á laugardaginn þegar Fredrikstad og Sola eigast við en hin þrautreynda landsliðskona, Camilla Herrem, leikur með Sola. Meistaraliðið Vipers Kristiansand tryggði sér fyrir nokkrum dögum sæti í úrslit bikarkeppninnar fjórða árið í röð.