Tveir leikmenn karlaliðs HK hafa helst úr lestinni og taka væntanlega ekki þátt í fleiri leikjum liðsins á leiktíðinni eftir því sem Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari KA segir við Handkastið. Um er að ræða Aron Dag Pálsson og Leó Snæ Pétursson.
Aron Dagur fór úr axlarlið en hjá Leó Snæ fór önnur hnéskelin úr skorðum. Átti þetta sér stað snemma leiks gegn ÍR í 17. umferð Olísdeildar mánudaginn 9. febrúar.
HK má illa við skakkaföllum en liðið er sem stendur í áttunda sæti deildarinnar, aðeins einu stigi á undan Selfossi þegar fjórar umferðir eru eftir. Áttunda sæti gefur þátttökurétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Níunda sæti veitir aðeins áframhaldandi þátttökurétt í Olísdeildinni á næstu leiktíð.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.


