- Auglýsing -
Arne Karl Wehmeier leikmaður Kórdrengja og Jón Örnólfsson liðsmaður Stjörnunnar U voru úrskurðaðir í eins leiks keppnisbann á fundi aganefndar HSÍ í vikunni.
Báðir voru útilokaðir í kappleikjum á dögunum vegna grófrar óíþróttamannslegrar framkomu. Dómarar mátu brot þeirra falla undir reglu 8:10, a og c.
Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir, HK, Þóra Björg Stefánsdóttir, ÍBV og Þorsteinn Gauti Hjálmarsson sem einnig voru útilokuð í leikjum um síðustu helgi sluppu við leikbann en minnt á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota.
Úrskurð aganefndar frá 29. mars 2022 er að finna hér.
- Auglýsing -