Ekkert annað en sigur dugir hjá U20 ára landsliði Íslands gegn Króatíu á morgun í leiknum í milliriðlakeppni Evrópumótsins í handknattleik í Porto. Eftir að Króatía og Ítalía skildu jöfn, 25:25, í riðli Íslands í dag þá eru bæði lið stigi á undan íslenska liðinu eins sjá má á stöðutöflu hér fyrir neðan. Það þýðir að til þess að ná öðru af tveimur efstu sætum riðilsins þarf sigur á morgun.
Jafntefli gegn Króötum nægir ekki jafnvel þótt að svo fari að ítalska liðið tapi fyrir Svartfellingum í hinni viðureign morgundagsins í riðlinum. Þar með væru ítalska og íslenska liðin jöfn að stigum. Ítalska liðið færi þá áfram í keppni um níunda til tólfta sæti ásamt Króatíu vegna þess að ítalska liðið vann íslenska liðið í viðureign liðanna fyrr í keppninni.
Mikilvægt er fyrir íslenska landsliðið að ná öðru af tveimur sætum riðilsins og eiga þess kost að leika um sæti níu til tólf á föstudag og á laugardaginn gegn liðum úr hinum milliriðli liðanna í neðri hluta mótsins. Af því að Þýskaland, sem verður gefstgjafi, heimsmeistaramóts karla, er í átta liða úrslitum, þá fá liðin sem hafna í ellefu efstu sætunum farseðil á heimsmeistaramót 21 árs liða sem haldið verður í Grikkland og Þýskalandi í lok júní og í byrjun júlí á næsta ári.
Komist Ísland ekki áfram á HM á næsta ári þá bíður liðsins ekkert verkefni á næsta ári.
Staðan í riðlinum fyrir leiki morgundagsins.
L | S | J | T | Markat. | Stig | |
Króatía | 2 | 1 | 1 | 0 | 53-50 | 3 |
Ítalía | 2 | 1 | 1 | 0 | 52-51 | 3 |
Ísland | 2 | 1 | 0 | 1 | 67-55 | 2 |
Svartfjallaland | 2 | 0 | 0 | 2 | 53-69 | 0 |