U20 ára landslið Íslands í handknattleik karla tapaði með 10 marka mun fyrir Dönum í fyrri vináttuleik liðanna í Faxe Hallen á Sjálandi í kvöld, 34:24. Afar slök frammistaða í fyrri hálfleik skipti sköpum þegar upp var staðið. Danska liðið, undir stjórn Arnórs Atlasonar, var tíu mörkum yfir þegar gengið var til búningsherbergja eftir 30 mínútur, 20:10.
Íslensku piltarnir byrjuðu síðari hálfleik vel. Þeim tókst að minnka forskot Dana niður í fjögur mörk, 24:20. Í þeirra stöðu fór dauðafæri forgörðum hjá íslenska liðinu. Eftir það fór allt í skrúfuna, ekki síst á síðustu tíu mínútunum. Danir gengu á lagið og tókst að bæta við forskot sitt og vinna stóran sigur. Liðin mætast öðru sinni á morgun.
Mörk Íslands: Andri Finnsson 8, Benedikt Gunnar Óskarsson 4, Andri Már Rúnarsson 3, Kristófer Máni Jónasson 2, Jóhannes Berg Andrason 2, Gauti Gunnarsson 2, Breki Hrafn Valdimarsson 1, Þorsteinn Leó Gunnarsson 1, Arnór Viðarsson 1.
- Auglýsing -