Framkvæmdastjóri HSÍ hefur fyrir hönd stjórnar sent erindi til aganefndar vegna ummæla leikmanns Vals eftir leik Vals og Fram í úrslitakeppni Olísdeildar karla sem fram fór í gær. Þetta kemur fram í fundargerð aganefndar HSÍ sem birt var síðdegis.
Ekki er tekið fram í fundargerðinni um hvaða leikmann er að ræða sem á að hafa látið falla þau orð sem ástæða þykir að vísa til aganefndar.
Samkvæmt heimildum handbolta.is mun vera um að ræða einhvern hluta þess sem Björgvin Páll Gústavsson markvörður Vals sagði í samtali við mbl.is eftir viðureign liðanna í gærkvöld. Þar gaf Björgvin m.a. í skyn að leikmenn Fram hafi viljandi skotið í höfuðið á honum.
„Annaðhvort gera þeir þetta viljandi eða eru svona lélegir. Ég veit að þeir eru góðir handboltamenn, svo það hlýtur að vera það fyrra,“ sagði Björgvin Páll í samtali við mbl.is.
Handknattleiksdeild Vals hefur frest til þess að skila inn greinargerð vegna málsins en aganefnd fundar daglega sé því að skipta meðan á úrslitakeppninni stendur.
Þorsteinn Gauti Hjálmarsson, Fram, Arnór Snær Óskarsson, Val, og Dagur Arnarsson, ÍBV, sem voru útilokaðir með skýrslu í leikjum átta liða úrslitanna í gærkvöld fara ekki í leikbann. Þeir eru minntir á stighækkandi áhrifum útilokana vegna slíkra brota.
Úrskurð aganefndar HSÍ í dag er að finna hér.