Þátttaka Norðmannsins Morten Linder með KA í undanúrslitaleik bikarkeppninnar síðar í þessum mánuði er í verulegum hættum. Linder fór úr axlarlið í viðureign KA og Vals í Olísdeild karla í handknattleik síðasta laugardag.
Andri Snær Stefánsson þjálfari KA staðfestir ótíðindin við Handkastið í dag. Næstu dagar munu skera úr um hversu lengi hann verður frá. Við vonum það besta en það er ljóst að Final 4 er í hættu hjá honum,“ segir Andri Snær við Handkastið.
Linder hefur komið eins og stormsveipur inn í KA-liðið á leiktíðinni og hefur skorað 87 mörk í Olísdeildinni.
Miðasala er hafin
KA mætir ÍR í undanúrslitum bikarkeppninnar fimmtudaginn 26. febrúar í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum. Miðasala á undanúrslitaleikina er hafin á stubb.is eftir því sem fram kemur í tilkynningu HSÍ í dag.


