Elín Klara Þorkelsdóttir og liðsfélagar í IK Sävehof standa vel að vígi eftir tvo sigurleiki á Skuru IK í átta liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik kvenna. Í gærkvöld vann IK Sävehof aðra viðureign liðanna, 33:24, í Skuru og þarf einn vinning til viðbótar til að öðlast sæti í undanúrslitum. Þriðja viðureignin verður ekki leikin fyrr en 16. apríl vegna þess að fram undan eru landsleikir í undankeppni Evrópumótsins.
Elín Klara skoraði sex mörk í sigrinum á Skuru IK í gær. Fjögur markanna skoraði Elín Klara úr vítaköstum. Hún var markahæst leikmanna liðsins en markaskorunin dreifðist á milli 10 leikmanna Sävehof-liðsins.
Önnur viðureign hjá Lenu Margréti
Í kvöld mætir Skara HF, sem Lena Margrét Valdimarsdóttir leikur með, liði VästeråsIrsta HF öðru sinni. Leikið verður í Västerås. Skara vann stórsigur í fyrsta leiknum, 32:22, á heimavelli.



