Valsmenn endurnýjuðu kynni sín af efsta sæti Olísdeildar karla í dag þegar þeir tryggðu sér tvö stig í sigri á KA, 36:31, í síðasta leik 18. umferðar í N1-höllinni á Hlíðarenda. Valur er þar með tveimur stigum fyrir ofan Hauka og þremur stigum á undan FH sem sitja í þriðja sæti. KA situr í sjötta sæti með 22 stig en Akureyringar höfðu unnið þrjá leiki í röð í deildinni áður en þeir máttu sætta sig við að vera ofurliði bornir í N1-höllinni.
Valur náði þar með að kvitta fyrir tap í KA-heimilinu fimmtudaginn 16. október, 33:28.
Valur var með yfirhöndina í leiknum frá byrjun til enda. Heimamenn voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 17:13. KA tókst að minnka muninn í tvígang í þrjú mörk í síðari hálfleik, 28:25, og 31:28, þegar um fimm mínútur voru til leiksloka. Nær komust þeir ekki til þess að hleypa spennu í viðureignina.
Mörk Vals: Gunnar Róbertsson 10/2, Arnór Snær Óskarsson 7/4, Bjarni í Selvindi 6, Dagur Leó Fannarsson 4, Andri Finnsson 3, Allan Norðberg 2, Þorgils Jón Svölu Baldursson 1, Logi Finnsson 1, Daníel Montoro 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 10, 25% – Jens Sigurðarson 0.
Mörk KA: Jens Bragi Bergþórsson 7, Arnór Ísak Haddsson 4, Einar Rafn Eiðsson 4/3, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 4, Einar Birgir Stefánsson 3, Giorgi Arvelodi Dikhaminjia 3, Logi Gautason 2, Morten Linder 2, Dagur Gautason 1, Magnús Dagur Jónatansson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 6/2, 19,4% – Bruno Bernat 6/1, 35,3%.
Tölfræði leiksins hjá HBstatz.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.



