Valur vann 18 marka sigur á KA, 39:21, í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik. Er þetta mesti markamunur sem hefur verið á milli liða í leikjum Olísdeildar á tímabilinu. Næst mætast liðin í KA-heimilinu á fimmtudaginn klukkan 18.30. Víst er að KA-menn geta ekki gert nema betur í þeirri viðureign.
Átta mörkum munaði á liðunum þegar fyrri hálfleikur var að baki, 17:9.
Varnarleikur og markvarsla Vals braut KA-liðið niður snemma viðureignar svo ekki stóð steinn yfir steini það sem eftir var. Markverðir Vals voru til að mynda með um 50% hlutafallsmarkvörslu sem vart hefði átt sér stað nema með góðum stuðningi frá vörninni.
Mörk Vals: Gunnar Róbertsson 8, Arnór Snær Óskarsson 7/2, Andri Finnsson 6, Þorgils Jón Svölu Baldursson 4, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 3, Bjarni í Selvindi 3, Dagur Árni Heimisson 2/1, Dagur Leó Fannarsson 2, Agnar Smári Jónsson 1, Allan Norðberg 1, Daníel Örn Guðmundsson 1, Magnús Óli Magnússon 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 17/1, 54,8% – Jens Sigurðarson 5, 45,5%.
Mörk KA: Jens Bragi Bergþórsson 5, Magnús Dagur Jónatansson 4, Dagur Gautason 3, Einar Rafn Eiðsson 2/1, Patrekur Stefánsson 2, Arnór Ísak Haddsson 1, Aron Daði Stefánsson 1, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 1, Einar Birgir Stefánsson 1, Logi Gautason 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 12, 28,6% – Bruno Bernat 4, 30,8%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



