Karlalið Vals í handknattleik tekur þátt í afar sterku alþjóðlegu móti í Þórshöfn í Færeyjum frá 13. til 16. ágúst á þessu ári sem væntanlega verður kærkominn undirbúningur fyrir átöku á næstu leiktíðar. Auk Vals taka þátt þýska liðið THW Kiel, danska liðið GOG og H71 sem verið hefur öflugasta karlalið Færeyja um árabil. Leikir mótsins fara fram í þjóðahöllinni í Færeyjum, við Tjarnir.
Frá mótinu segir færeyski fréttamiðillinn in.fo. Þar kemur fram að mótið verði það stærsta sem fram hefur farið á vettvangi félagsliða í handknattleik í landinu.

Færeyskir landsliðsmenn tengjast öll aðkomuliðinum. Bjarni í Selvindi og Allan Norðberg leika með Val. Elias Ellefsen á Skipagøtu er skærasta stjarna færeysks handknattleiks og einn af öflugri leikmönnum THW Kiel í Þýskalandi. Frændi hans, Óli Mittún, er burðarás GOG-liðsins sem er í næstefsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar og á auk þess sæti í Meistaradeild Evrópu.

H71 er í efsta sæti færeysku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir og leikur við Kyndil í úrslitum bikarkeppninnar á laugardaginn.
Frændurnir Elias og Óli léku eru H71-menn að upplagi auk þess sem Boas Ellefsen á Skipagøtu, bróðir Eliasar, leikur með liðinu um þessar mundir.


