Valur hefur þriggja stiga forskot í efsta sæti Olísdeildar karla eftir öruggan sigur á ÍR, 41:31, í Skógarseli í kvöld í 19. umferð Olísdeildar karla. Valur hefur 30 stig, FH 27 og Haukar 26. ÍR er áfram neðst með sjö stig en á sannarlega enn þá von um að halda sæti sínu í deildinni takist að vinna leikina sem eftir eru.
Fram vann HK í Lambhagahöllinni, 33:29, í hinni viðureign kvöldsins í Olísdeild karla. Framarar voru sterkari í leiknum frá byrjun til enda og munaði ekki hvað síst um stórleik Breka Hrafns Árnasonar markvarðar.
Framarar voru með sex marka forskot þegar fyrri hálfleikur var að baki, 20:14. Varnarleikur HK var ekki burðugur í fyrri hálfleik og markvarslan var eftir því. Þótt framfarir væru sæmast í síðari hálfleik dugði það HK skammt.
HK er í áttunda sæti með 12 stig. Fram er í næsta sæti fyrir ofan með 22 stig.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
ÍR – Valur 31:41 (14:21).
Mörk ÍR: Bernard Kristján Owusu Darkoh 6, Róbert Snær Örvarsson 5, Baldur Fritz Bjarnason 4, Elvar Otri Hjálmarsson 4, Sveinn Brynjar Agnarsson 3, Eyþór Ari Waage 3, Patrekur Smári Arnarsson 3, Bergþór Róbertsson 2, Bjartur Fritz Bjarnason 1.
Varin skot: Alexander Ásgrímsson 11, Ólafur Rafn Gíslason 5.
Mörk Vals: Gunnar Róbertsson 9, Arnór Snær Óskarsson 8, Daníel Montoro 5, Andri Finnsson 4, Dagur Leó Fannarsson 3, Logi Finnsson 3, Allan Norðberg 2, Bjarni í Selvindi 2, Daníel Örn Guðmundsson 2, Bjarki Snorrason 1, Þorgils Jón Svölu Baldursson 1, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 20, Jens Sigurðarson 2.
Fram – HK 33:29 (20:14).
Mörk Fram: Viktor Sigurðsson 6, Ívar Logi Styrmisson 6/4, Dánjal Ragnarsson 4, Eiður Rafn Valsson 3, Erlendur Guðmundsson 3, Dagur Fannar Möller 2, Kjartan Þór Júlíusson 2, Magnús Öder Einarsson 2, Max Emil Stenlund 2, Theodór Sigurðsson 2, Breki Hrafn Árnason 1.
Varin skot: Breki Hrafn Árnason 14, 37,8% – Arnór Máni Daðason 1, 20%.
Mörk HK: Andri Þór Helgason 7/3, Haukur Ingi Hauksson 7, Hjörtur Ingi Halldórsson 7, Ágúst Guðmundsson 3, Orfeus Andreou 2, Ingibert Snær Erlingsson 1, Jóhann Birgir Ingvarsson 1, Örn Alexandersson 1.
Varin skot: Jovan Kukobat 7, 36,8% – Brynjar Vignir Sigurjónsson 4, 17,4% – Róbert Örn Karlsson 0.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.



