Valur og KA eru komin áfram í undanúrslit úrslitakeppni Olísdeildar karla. Valur lagði HK, 32:28, í annarri viðureign liðanna í átta liða úrslitum í Kórnum í kvöld. KA lagði ÍBV öðru sinni í átta liða úrslitum, að þessu sinni með eins marks mun, 25:24, í leik sem ekki þurfti að framlengja. Fyrri viðureign liðanna sem fram fór í Eyjum á miðvikudagskvöld var tvíframlengd.
KA og Valur mætast í undanúrslitum. Ráðgert er að fyrsta viðureign liðanna fari fram á heimavelli Vals á Hlíðarenda á öðrum degi páska.
Annað kvöld verður áfram haldið í átta liða úrslitum Olísdeildar. Afturelding fær Hauka í heimsókn í Myntkauphöllina að Varmá klukkan 19. Hálftíma síðar taka Framarar á móti FH-ingum í Lambhagahöllinni. Haukar og FH unnu fyrstu viðureignir átta liða úrslita og geta sópað Aftureldingu og Fram út með sigrinum.
HK – Valur 28:32 (13:14)
Mörk HK: Sigurður Jefferson Guarino 7, Ágúst Guðmundsson 6, Haukur Ingi Hauksson 5, Tómas Sigurðarson 5, Leó Snær Pétursson 2, Orfeus Andreou 2, Hjörtur Ingi Halldórsson 1.
Varin skot: Brynjar Vignir Sigurjónsson 9/1, 30% – Jovan Kukobat 1, 8,3%.
Mörk Vals: Gunnar Róbertsson 10, Arnór Snær Óskarsson 4/3, Þorgils Jón Svölu Baldursson 4, Daníel Örn Guðmundsson 4, Bjarni í Selvindi 4, Allan Norðberg 2, Daníel Montoro 2, Magnús Óli Magnússon 1, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 13, 31,7%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
KA – ÍBV 25:24 (13:11)
Mörk KA: Dagur Gautason 5, Einar Birgir Stefánsson 5, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 4, Einar Rafn Eiðsson 3/2, Morten Linder 3, Jens Bragi Bergþórsson 2, Magnús Dagur Jónatansson 2, Arnór Ísak Haddsson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 19/3, 45,2%.
Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 6/1, Elís Þór Aðalsteinsson 5, Hákon Daði Styrmisson 5/2, Anton Frans Sigurðsson 3, Sigtryggur Daði Rúnarsson 2, Daníel Þór Ingason 1, Róbert Sigurðarson 1, Sveinn José Rivera 1.
Varin skot: Petar Jokanovic 5, 23,8% – Morgan Goði Garner 4/1, 36,4%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



