- Auglýsing -
Veikindi er sögð herja á leikmenn króatíska landsliðsins sem mætir Íslandi í úrslitaleiknum um 3. sæti Evrópumótsins í handknattleik í Jyske Bank Boxen klukkan 15.15 í dag. Króatískir fjölmiðlar segja frá þessu í morgunsárið. M.a. mun markvörðurinn öflugi, Dominik Kuzmanovic, hafa verið veikur í nótt ef marka má fréttir.
Fleiri leikmenn virðast hafa verið slappir samkvæmt fregnum 24sata.hr. M.a. Matej Mandić og Filip Glavaš.
Veikindi hafa herjað að marga í kuldanum í Danmörku og Svíþjóð síðustu daga meðan EM hefur staðið yfir, jafnt leikmenn sem almenning.
- Auglýsing -


