„Við höfum farið vel yfir það sem betur mátti fara í leiknum við Færeyinga og erum staðráðnar í að gera betur og vinna úrslitaleikinn sem fram undan er,“ segir Elín Rósa Magnúsdóttir landsliðskona í handknattleik sem mætir með stöllum sínum til leiks við Portúgal á Ásvelli klukkan 16 í dag. Þar stendur fyrir dyrum úrslitaleikur um sæti á Evrópumótinu síðar á þessu ári.
„Ég vona að allir sem hafa sótt sér miða mæti á Ásvelli og styðji við bakið á okkur þannig að fram undan verði frábær sunnudagur. Það er geggjað að spila fyrir framan fulla höll af áhorfendum,“ segir Elín Rósa.
Íslenska landsliðið tapaði fyrri viðureigninni við Portúgal í október sl. með eins marks mun, 26:25. Þar af leiðandi þarf Ísland að vinna leikinn með tveggja marka mun í dag til þess að komast áfram. Reyndar eru fleiri möguleikar, svo sem að vinna með eins marks mun, 25:24, og fara þar með áfram á fleiri mörkum skoruðum.
Elín Rósa hefur fulla trú á íslenskum sigri í dag. Íslenska liðið hafi tekið framförum síðan í viðureigninni við Portúgal auk þess sem það hafi vaxið að reynslu. „Ég held að það sé góður stígandi hjá okkur,“ segir Elín Rósa Magnúsdóttir landsliðskona í handknattleik.
A-landsliðs kvenna – fréttasíða.


