Stórleikur landsliðsmannsins Viggós Kristjánssonar með HC Erlangen gegn GWD Minden í þýsku 1. deildinni í handknattleik hefur komið honum í einstakan hóp handknattleiksmanna í þýsku 1. deildinni. Viggó skoraði 16 mörk í leiknum. Hann varð þar með 15. handknattleiksmaðurinn sem skorar 16 mörk eða fleiri í þýsku 1. deildinni frá upphafi.
Elsti leikmaðurinn á listanum er Herbert Lübking. Hann skoraði 20 mörk í leik með GWD Minden leiktíðina 1968/69. Það var markamet í deildinni í 40 ár eða allt þar til Stefan Schröder, þá leikmaður HSV Hamburg, bætti metið um eitt mark í lokaumferð deildarinnar 6. júní 2009.
Flest mörk í leik í þýsku 1.deildinni:
Stefan Schröder – 21 mark – 2008/09.
Herbert Lübking – 20 – 1968/69.
Jerzy Klempel – 19 – 1982/83.
Anders Eggert – 18 – 2011/12.
Jerzy Klempel – 18 – 1986/87.
Kyung-Shin Yoon – 18 – 2006/07.
Michael Kraus – 18 – 2018/19.
Stefan Lövgren – 18 – 2008/09.
Sven-Sören Christophersen – 18 – 2007/08.
Daniel Stephan – 17 – 2004/05.
Hans Lindberg – 17 – 2009/10.
Hans Lindberg – 17 – 2012/13.
Jerzy Klempel – 17 – 1985/86.
Jochen Fraatz – 17 – 1995/96.
Morten Olsen – 17 – 2012/13.
Nikolaj Jacobsen – 17 – 1998/99.
Uwe Gensheimer – 17 – 2009/10.
Viggó Kristjánsson – 16 – 2025/26.
Hér fyrir neðan er nokkur mörk Viggós í leiknum við GWD Minden.



