Landsliðsmennirnir Viggó Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon eru á meðal tíu markahæstu leikmanna þýsku 1. deildarinnar þegar keppni er rétt rúmlega hálfnuð. Þeir fylgjast að í fimmta og sjötta sæti. Viggó hefur skorað 120 mörk og er 28 mörkum á eftir Manuel Zehnder sem komið hefur inn í deildina eins og stormsveipur með nýliðum Eisenach.
Ómar Ingi er næstur á eftir Viggó með 113 mörk. Ómar Ingi fór rólega af stað í deildinni í haust meðan hann var að jafna sig eftir langvarandi meiðsli. Hann hefur verið öflugur í síðustu leikjum og farið hratt upp listann.

Elvar Örn Jónsson var á meðal 20 markahæstu leikmanna deildarinnar hann meiddist síðla í nóvember en hefur skiljanlega sigið niður listann enda ekkert leikið með í síðustu leikjum Melsungen.
20 markahæstu í þýsku 1. deildinni eftir 19 umferðir:
Manuel Zehnder | Eisenach | 148/45 |
Mathias Gidsel | F. Berlin | 141/0 |
Casper Ulrich Mortensen | Hamburg | 134/46 |
Lasse Bredekjær Andersson | F. Berlin | 125/0 |
Viggó Kristjánsson | Leipzig | 120/36 |
Ómar Ingi Magnússon | Magdeburg | 113/68 |
Domen Novak | Wetzlar | 109/47 |
Emil Jakobsen | Flensburg | 108/37 |
Timo Kastening | Melsungen | 106/33 |
Lenny Rubin | Wetzlar | 104/0 |
Kai Häfner | Stuttgart | 103/0 |
Felix Claar | Magdeburg | 101/0 |
Samuel Zehnder | Lemgo | 99/63 |
Niclas Kirkeløkke | RN-Löwen | 97/1 |
Ivan Martinovic | Melsungen | 95/30 |
Hans Lindberg | F. Berlin | 94/56 |
Marcel Schiller | Göppingen | 93/51 |
Juri Knorr | RN-Löwen | 84/18 |
Matej Klima | Leipzig | 83/0 |
Daniel F. Jimenez | Lemgo | 82/34 |