Viktor Gísli Hallgrímsson landsliðsmarkvörður stóð svo sannarlega fyrir sínu í gær þegar Barcelona lagði Tubos Aranda Villa de Aranda, 41:27, á heimavelli í 18. umferð spænsku 1. deildarinnar í handknattleik.
Viktor Gísli stóð í marki Barcelona annan hálfleikinn og varði 11 skot, 48% hlutfallsmarkvarsla. Hinn ungi Filip Saric varði tíu skot í markinu í síðari hálfleik. Staðan var 23:12 þegar fyrri hálfleikur var að baki.
Petar Cikusa var markahæstur hjá Barcelona. Hann skoraði átta mörk. Manuel Ortega, Adrian Sola Basterra, Djordje Cikusa og Antonio Bazán skoruðu fimm mörk hver.
Aðeins tveir sólarhringar
Aðeins voru liðnir tveir sólarhringar frá því að Barcelona lagði Pick Szeged í Ungverjalandi og þangað til flautað var til leiks í Palau Blaugrana-keppnishöllinni í Barcelona í gær. Þess vegna fengu margir af reyndari leikmönnum Barcelona að taka minni þátt í leiknum en ella hefði orðið.
Barcelona er efst í spænsku deildinni með 36 stig eftir 18 leiki. Dicorpebal Logroño La Rioja er níu stigum á eftir í öðru sæti.




