„Ég tók snemma ákvörðun um að tefla fram eins sterku liði og mögulegt væri í leikjunum við Svía,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari karla í handknattleik í dag þegar hann tilkynnti um þann hóp leikmanna sem hann ætlar að tefla fram í vináttuleikjunum við Svíþjóð hér á landi 19. og 21. mars.
Sextán af 19 leikmönnum sem Snorri Steinn valdi í dag voru í EM-hópnum í janúar.
Þrjár breytingar á EM-hópnum fyrir Svíaleikina
Eiga það skilið
„Í fyrsta lagi erum við að mæta alvöru liði. Svíar mæta með EM-lið sitt hingað. Í öðru lagi fannst mér strákarnir sem tóku þátt í EM eiga það skilið að fá að leika og ekki síst fólkið sem hreifst með og tók þátt í þeim rússibana með okkur sem mótið varð. Þessir leikir eru fyrir báða aðila til þess að njóta,“ sagði Snorri Steinn.
„Fyrir vikið er ekki um miklar breytingar á hópnum en auðvitað er alltaf hægt að velta einhverju fyrir sér þegar kemur að vali á landsliðshópi,“ sagði Snorri enn fremur.
Alltaf að skoða markverðina
Athygli vakti að Snorri Steinn valdi Ísak Steinsson, ungan markvörð Drammen, í hópinn á nýjan leik. Ísak var í hópnum á fyrri hluta síðasta árs en var síðan ekkert með í haustleikjunum við Þjóðverja né í EM-undirbúningshópnum.
„Ég er svo sem alltaf að skoða þriðja markvörðinn. Ágúst [Elí Björgvinsson] var með okkur í Þýskalandi í nóvember og Einar [Baldvin Baldvinsson] tók þátt í undirbúningi EM. Ég ákvað eftir nokkra skoðun að velja Ísak að þessu sinni. Hann hefur staðið sig vel eftir áramótin í þeim leikjum sem ég séð eftir áramótin. Síðar kemur í ljós hvað ég geri þegar kemur að leikjunum við Egypta í maí.“
Gömul saga og ný
Snorri Steinn segir að vitanlega verði allt lagt í sölurnar við Svía þótt um vináttuleiki verði að ræða.
„Þetta eru landsleikir og á heimavelli þar á ofan sem segir okkur að við verðum að gera það vel. Við höfum skyldur, bæði gagnvart okkur og áhorfendum. Þar á ofan er það gömul saga og ný að því oftar sem menn leika vel því meiri framförum tekur liðið. Ég er ánægður með þá þróun og þann stíganda sem verið hefur í landsliðinu síðan ég tók við. Ég vil halda þeirri þróun áfram. Við megum ekki sofna á verðinum þótt ekki séu framundan leikir í framundan í forkeppni HM. Þar á ofan megum við ekki láta líða önnur sextán ár án þess að komast í undanúrslit á stórmóti,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla.



