- Auglýsing -
Vilhjálmur Halldórsson hefur ráðinn rekstrarstjóri handknattleiksdeildar Stjörnunnar. Vilhjálmur er Stjörnufólki vel kunnugur, enda hefur hann verið virkur þátttakandi í starfi félagsins í mörg ár – sem leikmaður, þjálfari og sjálfboðaliði.
„Tek við góðu búi frá Patta og Daníel – deildin er orðin afar fjölmenn, með marga iðkendur og spennandi tímar framundan hjá báðum meistaraflokkum. Stefnan er að gera enn betur og hlúa vel að yngri flokkunum, þar sem einmitt ástríðan mín liggur,” er m.a. haft eftir Vilhjálmi í tilkynningu.
Vilhjálmur kemur til starfa í ágúst þegar Patrekur Jóhannesson hættir og verður svæðisfulltrúi íþróttahéraðanna á höfuðborgarsvæðinu á vegum Ungmennafélags Íslands.
- Auglýsing -