- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

11 stoðsendingar Hauks – mikilvæg stig hjá Arnóri – Ýmir Örn vann í Hannover

- Auglýsing -

Afar góður leikur Hauks Þrastarsonar nægði ekki Rhein-Neckar Löwen til þess að vinna meistara Füchse Berlin í viðureign liðanna í Berlín í dag, lokatölur, 35:28. Haukur skoraði sex mörk og gaf 11 stoðsendingar sem tryggir að hann er áfram langefstur á lista þeirra sem fóðrað hafa samherja sína með sendingum í þýsku 1. deildinni á leiktíðinni.


Þýska línumanninum Jannik Kohlbacher líkaði lífið og allar sendingarnar frá Hauki í leiknum. Hann var markahæstur með átta mörk.

Tim Freihöfer var markahæstur Berlínarmanna með níu mörk. Daninn Mathias Gidsel skoraði átta mörk og gaf fimm stoðsendingar.

Treglega gengur hjá Blæ – Arnór fagnaði

Treglega gengur hjá Blæ Hinrikssyni og samherjum í Leipzig að lyfta sér upp af botni þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Þeir töpuðu í dag á heimavelli fyrir Bergischer HC á heimavelli, 35:28. Bergischer, sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar við annan mann, var í 15. og þriðja neðsta sæti fyrir leikinn í Leipzig í dag. Sigurinn færði liðið upp um eitt sæti með 12 stig eins og GWD Minden. Leipzig og Wetzlar reka lestina með átta stig hvort.

Blær skoraði þrjú mörk í dag og gaf eina stoðsendingu. Franz Semper var markahæstur með fimm mörk.

Lukas Becher var markahæstur leikmanna Bergischer í sigrinum mikilvæga með sjö mörk.

Góður sigur hjá Ými Erni og félögum

Ýmir Örn Gíslason og liðsfélagar í Göppingen unnu góðan sigur á Hannover-Burgdorf, 28:22, í ZAG Arena í Hannover. Göppingen situr í 11. sæti með 18 stig í 23 leikjum. Hannover-Burgdorf er í 9. sæti með 22 stig.

Ýmir Örn Gíslason skoraði eitt mark fyrir Göppingen. Elias Newel var markahæstur með átta mörk.

Renars Uscins skoraði níu mörk fyrir Hannover-Burgdorf hvar Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari nú sem áður.

Staðan:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -