Landslið Íslands í handknattleik, skipað piltum 17 ára og yngri, tekur þátt í Nordic Open-mótinu sem fram fer í Færeyjum á föstudag, laugardag og sunnudag ásamt landsliðum Færeyja, Sviss og Þýskalands. Leikið verður í Rúnavík á föstudaginn en í nýju þjóðarhöll Færeyinga, Við Tjarnir, tvo síðari keppnisdagana.
Leikirnir eru hluti af undirbúningi íslenska landsliðsins fyrir Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fer í í Norður Makedóníu 20.- 26. júlí.
Leikjadagskrá Nordic Open.
Föstudagur:
Sviss – Þýskaland kl. 17.
Færeyjar – Ísland kl. 19.
Laugardagur:
Sviss – Ísland kl. 15.
Færeyjar – Þýskaland kl. 17.
Sunnudagur:
Þýskaland – Ísland kl. 9.
Færeyjar – Sviss kl. 15.
Í lok apríl völdu Ásgeir Örn Hallgrímsson og Andri Sigfússon þjálfarar U17 ára landsliðsins eftirtalda leikmenn til undirbúnings og þátttöku í leikjunum í Færeyjum og Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar.
Alex Unnar Hallgrímsson, Fram.
Anton Frans Sigurðsson, ÍBV.
Anton Máni Francisco Heldersson, Valur.
Bjarki Snorrason, Valur.
Freyr Aronsson, Haukar.
Gunnar Róbertsson, Valur.
Kári Steinn Guðmundsson, Valur.
Kristófer Tómas Gíslason, Fram.
Logi Finnsson, Valur.
Matthías Dagur Þorsteinsson, Stjarnan.
Ómar Darri Sigurgeirsson, FH.
Örn Kolur Kjartansson, Valur.
Patrekur Smári Arnarsson, ÍR.
Ragnar Hilmarsson, Selfoss.
Sigurmundur Gísli Unnarsson, ÍBV.
Til vara:
Bjarki Freyr Sindrason, HK.
Helgi Marinó Kristófersson, Haukar.
Jóhannes Andri Hannesson, FH.
Jón Sverrir Björgvinsson, FH.
Róbert Daði Jónsson, Haukar.