U17 og U19 ára landslið kvenna í handknattleik unnu viðureignir sínar við landslið Færeyinga í sama aldursflokki í dag. Leikið var í Vestmanna í Færeyjum. Liðin mætast aftur við Streymin á morgun. Leikirnir eru liður í undirbúningi íslensku liðanna fyrir þátttöku í Evrópumótum 17 og 19 ára landsliða sem fram fara í Svartfjallalandi í næsta mánuði.
U17 ára: Færeyjar – Ísland 26:32 (11:19).
Mörk Íslands: Laufey Óskarsdóttir 8, Ebba Guðríður Ægisdóttir 4, Eva Lind Tyrfingsdóttir 4, Vigdís Arna Hjartardóttir 3, Roksana Jaros 3, Tinna Ósk Gunnarsdóttir 3, Agnes Lilja Styrmisdóttir 2, Alba Mist Gunnarsdóttir 2, Eva Steinsen Jónsdóttir 1, Guðrún Ólafía Marinósdóttir 1, Valgerður Elín Snorradóttir 1.
Varin skot: Arna Sif Jónsdóttir 7, Danijela Sara Björnsdóttir 3 Erla Rut Viktorsdóttir 2.
U19 ára: Færeyjar – Ísland 25:26 (12:12).
Mörk Íslands: Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 5, Arna Karítas Eiríksdóttir 4, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 4, Ágústa Rún Jónasdóttir 3, Guðrún Hekla Traustadóttir 3, Sara Lind Fróðadóttir 3, Ásrún Inga Arnarsdóttir 2, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 1, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 1.
Varin skot: Elísabet Millý Elíasardóttir 9, Ingunn María Brynjarsdóttir 4.
