- Auglýsing -
- Auglýsing -

Monthly Archives: July, 2025

Sif ætlar að standa vaktina hjá ÍR

Sif Hallgrímsdóttir, markvörður, hefur ákveðið að ganga til liðs við Olísdeildarlið ÍR eftir því sem handbolti.is kemst næst. Sif hefur undanfarin þrjú ár ár verið annar tveggja markvarða KA/Þórs. Hún var einnig í samtali við Fram en ekkert varð...

Myndasyrpa: Strákarnir á leiðinni í undanúrslitaleikinn

Framundan hjá U19 ára landsliðinu í handknattleik karla er undanúrslitaleikur við Króatíu á Opna Evrópumótinu í handknattleik karla. Flautað verður til leiks klukkan 17. Sigurliðið leikur til úrslita á mótinu á morgun gegn Spánverjum. Spánn vann Svíþjóð, 36:23, í...

Arnviður Bragi og Þormar skrifa undir samninga nyrðra

Á dögunum skrifuðu tveir ungir Þórsarar undir nýja samninga við handknattleiksdeild félagsins. Annar er Þormar Sigurðsson sem er vinstri hornamaður sem er fæddur 2006.Hinn er Arnviður Bragi Pálmason sem er vinstri skytta ásamt því að vera öflugur varnarmaður en...

Myndskeið: Glæsitilþrif Viktors Gísla

Í tilefni af komu landsliðsmarkvarðarsins Viktors Gísla Hallgrímssonar til Barcelona í sumar deilir Handknattleikssamband Evrópu, EHF, í dag myndskeiði með frábærum tilþrifum Viktors Gísla í leikjum Wisla Plock í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð. Big move in the #ehfcl! 𝗩𝗶𝗸𝘁𝗼𝗿...

Allt klárt fyrir Ragnarsmótið á Selfossi

Þótt fátt sé að frétta af þátttöku og niðurröðun leikja í Olís- og Grill 66-deildum fyrir næsta keppnistímabil þótt liðið sé inn í júlí getur áhugafólk um hið árlega Ragnarsmót í handknattleik karla og kvenna tekið gleði sína vegna...

EM kvenna 19 ára hefst í næstu viku – keppnishópurinn valinn

Evrópumót 19 ára landsliða kvenna hefst í Podgorica í Svartfjallalandi á miðvikudaginn í næstu viku. Ísland verður á meðal 24 þjóða sem sendir lið til keppni á mótinu. Íslenska liðið dróst í B-riðil með Danmörku, Litáen og heimaliðinu frá...

Myndasyrpa: Margir Íslendingar á Partille Cup

Hið árlega Partille Cup handknattleiksmót hófst í Gautaborg og Partille í Svíþjóð á mánudaginn og stendur fram á sunnudag. Keppendur skipta þúsundum og koma frá a.m.k. 50 þjóðum enda er mótið eitt það fjölmennasta handknattleiksmót sem haldið er ár...

Molakaffi: Turchenko, Pera, áhugamannalið, Kamp, Sarmiento

Úkraínska stórskyttan Ihor Turchenko hefur samið við franska liðið HBC Nantes til næstu tveggja ára. Turchenko hefur verið í herbúðum Limoges í Frakklandi undanfarin tvö ár.  Florentin Pera, þjálfari rúmenska kvennalandsliðsins í handknattleik, hefur bætt á sig öðru starfi. Hann...

„Okkur hefur bara gengið rosalega vel“

„Okkur hefur bara gengið rosalega vel og liðið leikið afar góðan handbolta,“ sagði Heimir Ríkarðsson annar þjálfari U19 ára landsliðs karla í handknattleik þegar handbolti.is sló á þráðinn til hans í kvöld. Íslenska liðið hefur unnið fjóra af fimm...

Uppstokkun hjá Barcelona – meiri áhersla á yngri leikmenn

Handknattleikslið FC Barcelona stendur frammi fyrir mikilli endurskipulagningu fyrir tímabilið 2025/26. Með íþróttastjórann Enric Masip við stjórnvölinn hefur félagið hafið ferli breytinga. Tólf leikmenn síðasta keppnistímabils hafa róið á önnur mið og sjö nýir leikmenn hafa bæst við, þar...
- Auglýsing -

Nýjustu fréttir

Mikil spenna vegna forsetakjörs – vöngum velt yfir heilsu Moustafa

Vaxandi spennu gætir síðustu dagana áður en þing Alþjóða handknattleikssambandsins hefst í Kaíró. Mikil eftirvænting ríkir vegna væntanlegs forsetakjörs...
- Auglýsing -