- Auglýsing -
- Auglýsing -

Monthly Archives: August, 2025

Markvörður SC Magdeburg í leikbanni næstu mánuði

Nikola Portner markvörður Evrópumeistara SC Magdeburg og svissneska landsliðsins verður í keppnisbann til 10. desember og í æfingabanni með Magdeburg fram til 10. október. Dómssátt náðist í gær í máli hans sem fór fyrir Alþjóða íþróttadómstólinn í Lausanne (CAS)...

Tanja Glóey framlengir til tveggja ára hjá HK

Tanja Glóey Þrastardóttir, markvörður, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við HK sem leikur í Grill 66-deildinni á komandi keppnistímabili. Tanja kom aftur í HK fyrir tveimur árum eftir að hafa verið um skeið hjá Aftureldingu. Hún hefur reynst...

Hákon Daði og félagar fóru áfram í bikarnum

Hákon Daði Styrmisson skoraði þrjú mörk þegar lið hans, Eintracht Hagen, vann HC Empor Rostock, 35:24, í fyrstu umferð þýsku bikarkeppninnar í gær. Leikið var á heimavelli HC Empor Rostock. Áfram verður haldið keppni í þýsku bikarkeppninni í dag og...

Molakaffi: Beneke, Roth, Lassource, Sagosen

Handknattleiksmaðurinn Max Beneke hefur verið lánaður í eitt ár frá meistaraliðinu Füchse Berlin til Eisenach. Beneke þykir lofandi handknattleiksmaður en fékk fá tækifæri hjá Berlínarliðinu á síðasta tímabili vegna Danans Mathias Gidsel sem fór með himinskautum. Beneke hefur leikið...

KG Sendibílamótið

Úrslit kvöldsins og markaskorarar: KA/Þór – ÍBV 18:28 Mörk KA/Þórs: Anna Petrovic 4, Unnur Ómarsdóttir 3, Rakel Sara Elvarsdóttir 3, Trude Håkonsen 3, Susanne Pettersen 2, Elsa Guðmundsdóttir 1, Tinna Valgerður Gísladóttir 1, Lydía Gunnþórsdóttir 1.Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 7, Ásdís...

Var mikilvægt að vinna leikinn og enda á jákvæðum nótum

„Við erum vitanlega mjög ánægðir með þennan sigur. Okkur fannst mjög mikilvægt að vinna þennan leik og fá að spila um fimmta sætið, enda mótið á góðum nótum,“ sagði Heimir Ríkarðsson annar þjálfari 19 ára landsliðs karla í samtali...

Yfirlýsing frá ÍBV: Ávallt tvær hliðar á öllum málum

Aðalstjórn ÍBV-íþróttafélags sendi í kvöld frá sér snarpa yfirlýsingu vegna fréttaflutnings af Kára Kristjáni Kristjánssyni handknattleiksmanni sem ekki fær nýjan samning við handboltalið félagsins. „ÍBV-íþróttafélag harmar að viðræður við Kára Kristján hafi ekki gengið sem skyldi. Félagið áréttar að ávallt...

Þýskaland og Spánn leika til úrslita á HM

Þjóðverjar og Spánverjar leika til úrslita um heimsmeistaratitilinn í handknattleik karla, 19 ára og yngri, á sunnudaginn. Spánverjar lögðu Svía í undanúrslitum í dag, 33:30, eftir jafna stöðu í hálfleik, 18:18. Spánverjar hafa aðeins tapaði einum leik á mótinu...

HM19-’25: Sætur sigur á Ungverjum – mæta Egyptum á sunnudaginn

Íslenska landsliðið leikur um 5. sætið á heimsmeistaramóti 19 ára landsliða karla í handknattleik í Kaíró á sunnudaginn gegn heimaliðinu, Egyptalandi. Íslenska liðið lagði Ungverja í spennuleik í dag, 37:36, eftir að staðan var jöfn í hálfleik, 17:17. Viðureign...

Beint – Ísland – Ungverjaland, kl. 16.30

Landslið Íslands og Ungverjalands mætast í krossspili um sæti fimm til átta á heimsmeistaramóti 19 ára landsliða karla í Kaíró í Egyptalandi klukkan 16.30. Hér fyrir neðan er streymi frá leiknum. https://www.youtube.com/watch?v=fHfSoo09abk
- Auglýsing -

Nýjustu fréttir

Noregur tekur afstöðu – ætlar ekki að kjósa Moustafa

Randi Gustad, forseti norska handknattleikssambandsins, sýnir enga hálfvelgju heldur staðfestir við VG að Noregur ætli ekki styðja Hassan Moustafa...
- Auglýsing -