- Auglýsing -
- Auglýsing -

Monthly Archives: August, 2025

Mosfellingar fóru heim með 11 marka sigur af Nesinu

Afturelding lagði Grill 66-deildarlið Gróttu með 11 marka mun, 31:20, æfingaleik í karlaflokki í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi í kvöld. Bæði lið hafa tekið nokkrum breytingum auk þess sem aðrir þjálfarar hafa tekið við stjórn liðanna. Stefán Árnason er nú...

Tíu marka sigur Valsara á nýliðum Selfoss

Valur vann öruggan sigur á liði Selfoss í æfingaleik karlaliða félaganna í kvöld, 36:26, en tíu marka munur var einnig þegar fyrri hálfleikur var að baki, 20:10. Valsliði virðist til alls líklegt undir stjórn nýs þjálfara, Ágústs Þórs Jóhannssonar. Gunnar...

HM19-’25:„Þetta er bara mjög gott lið“

„Danir eru með hörkulið og hafa yfir að ráða miklum hraða sem þeir leggja mikið upp úr að færa sér í nyt,“ segir Heimir Ríkarðsson annar þjálfari 19 ára landsliðsins í handknattleik um væntanlegan mótherja íslenska landsliðsins í átta...

Unnu ÍBV með 10 marka mun – æfingaferð framundan

Íslands- og Evrópubikarmeistarar Vals í handknattleik kvenna unnu ÍBV, 33:23, í æfingaleik í N1-höllinni í gær. Valur var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 18:14. „Liðið lék á stórum köflum vel og fengu margar ungar og efnilegar stelpur tækifæri og...

Alexander ráðinn í þjálfarateymi Lettlands

Alexander Peterson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlalandsliðs Lettlands í handknattleik. Tilkynnt var um ráðningu Alexanders í morgun samhliða því að Margot Valkovskis tók að sér að vera aðalþjálfari landsliðsins. Andris Molotanovs verður þriðja hjólið í þjálfarateyminu sem markvarðaþjálfari. Þetta verður...

Nökkvi Snær verður áfram í Eyjum

Nökkvi Snær Óðinsson hefur framlengt samning sinn við ÍBV handbolta. Hann er einn af uppöldum leikmönnum ÍBV og hefur verið einn hlekkur hópsins undanfarin ár. Hann skoraði 23 mörk í 20 leikjum í Olísdeildinni á síðasta keppnistímabili. „Nökkvi er þekktur...

HM19-’25: Maður á eftir að skoða lokamínútuna hvað eftir annað

„Þetta var gríðarlegur spenntryllir og strákanir sýndu einstakan karakter í leiknum. Það var mikil liðsheild sem skóp þennan sigur,“ sagði Heimir Ríkarðsson annar þjálfari U19 ára landsliðsins í handknattleik karla við handbolta.is í gærkvöld, eftir að hann hafði náð...

Molakaffi: Elvar, Ísak, Guðmundur, Green, fleiri fara, Schluroff

Elvar Ásgeirsson skoraði fjögur mörk fyrir Ribe-Esbjerg þegar liðið gerði jafntefli við Mors-Thy í æfingaleik í gær, 25:25.  Frederica HK, sem Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfar, vann norska úrvalsdeildarliðið Drammen HK, 29:27, í æfingaleik á sunnudaginn. Ísak Steinsson markvörður U21 árs...

HM19-’25: Myndskeið – ein minnistæðasta mínúta síðari tíma og sigurmark

Síðasta mínútan í sigurleik íslenska landsliðsins á Spáni í átta liða úrslitum heimsmeistaramóts 19 ára landsliða karla er ein sú ævintýralegasta í sigurleik íslensks handboltalandsliðs á síðari árum, 32:31. Íslenska landsliðið tryggði sér sigurinn með tveimur mörkum á síðustu...

HM19-’25: Strákarnir mæta Dönum í 8-liða úrslitum

Íslenska landsliðið mætir Dönum í átta liða úrslitum heimsmeistaramóts 19 ára landsliða karla í handknattleik á fimmtudaginn. Flautað verður til leiks klukkan 14. Sigurliðið tekur sæti í undanúrslitum á föstudaginn en tapliðið leikur sama dag í krossspili um sæti...
- Auglýsing -

Nýjustu fréttir

Arnór Þór og liðsmenn taka þátt í úrslitahelgi bikarsins – mæta Magdeburg

Arnór Þór Gunnarsson og liðsmenn hans í Bergischer HC unnu sér í kvöld sæti í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í...
- Auglýsing -