„Tilfinningin er frábær. Ég er ógeðslega glöð og stolt. Ég er ánægð með karakterinn í okkur í dag,“ sagði Elísa Elíasdóttir, línumaður Vals, í samtali við handbolta.is eftir að liðið vann bikarmeistaratitilinn með fjögurra marka sigri á Haukum í...
Valur varð í dag bikarmeistari kvenna í handknattleik eftir frábæran lokakafla í úrslitaleik við Hauka í Kuehne+Nagel höllinni, Ásvöllum, 23:19. Haukar skoruðu aðeins eitt mark á síðustu 15 mínútum leiksins á sama tíma og Valur skoraði níu mörk. Þetta...
Katla María Magnúsdóttir og stöllur hennar í Holstebro Håndbold unnu öruggan sigur á Sæby HK, 34:27, í 19. umferð dönsku 1. deildarinnar í Holstebro í dag og eru því langt komnar með að tryggja sér sigur í deildinni og...
Elín Klara Þorkelsdóttir og liðsfélagar hennar í IK Sävehof unnu enn einn sigurinn í sænsku úrvalsdeildinni í dag og tryggðu sér um leið deildarmeistaratitilinn. Að þessu sinni kom IF Hallby HK í heimsókn og lá í valnum, en lokatölur...
Stórleikur Viktors Gísla Hallgrímssonar með Barcelona gegn HC Zagreb á fimmtudagskvöld í Meistaradeild Evrópu tryggði honum sæti í liði 12. umferðar Meistaradeildar Evrópu í handknattleik.
Viktor Gísli varði 17 skot, 39,5%, í 20 marka sigri Barcelona, 46:26, á heimavelli. Barcelona...
Haukar og ÍR eigast við í úrslitaleik bikarkeppni karla í handknattleik í dag í Kuehne+Nagel höllinni, Ásvöllum, á morgun, laugardag. Flautað verður til leiks klukkan 18.30.
Haukar hafa unnið bikarkeppni karla í sjö skipti, síðasta 2014 í úrslitaleik við ÍR...
Henrik Signell hefur sagt upp samningi sínum sem þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins Larvik. Þar með er ljóst að nýr þjálfari verður við stjórnvölinn hjá liðinu í sumar þegar Dana Björg Guðmundsdóttir landsliðskona gengur til liðs við Larvik.
Signell tók við þjálfun...
Sænska landsliðskonan Anna Lagerquist ætlar að leggja handboltaskóna á hilluna í lok leiktíðar aðeins 32 ára gömul. Evrópumeistarar Györ segja frá ákvörðun Lagerquist en hún hefur leikið með þeim síðustu ár.
Þrálát og erfið meiðsli hafa sett stórt strik í...
„Því miður er ég ansi hræddur um að Haukarnir rúlli yfir þann leik,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari ríkjandi Íslands- og bikarmeistara Fram í karlaflokki, í samtali við handbolta.is er hann var beðinn um að rýna í úrslitaleik Hauka og...
„Ég á von á jöfnum leik. Vonandi fáum við jafnan leik, það væri draumur. Þetta á að vera góður bikarúrslitaleikur,“ sagði Grétar Áki Andersen, þjálfari kvennaliðs ÍR, í samtali við handbolta.is, beðinn um að spá í úrslitaleik Hauka og...
Handknattleikssambandið stendur fyrir blaðamannafundi klukkan 13 í húsnæði Arion banka í Borgartúni. Á fundinum tilkynnir Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna...