„Líðanin er geggjuð. Við náttúrlega klúðruðum því í fyrra þannig að það er rosa gott að vera mætt aftur í úrslitaleikinn,“ sagði Hildur Björnsdóttir, fyrirliði Vals, eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitum Powerade bikarsins með öruggum sigri...
Valur leikur til úrslita í bikarkeppni kvenna í handknattleik í sautjánda sinn á laugardaginn. Valsliðið lagði KA/Þór, 29:22, í undanúrslitaleik í Kuehne+Nagel-höllinni, Ásvöllum í kvöld eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik, 16:13.
Valur mætir Haukum í úrslitaleik...
Sigvaldi Björn Guðjónsson var á meðal markahæstu manna þegar lið hans Kolstad tapaði 26:33 fyrir Nantes í 12. umferð A-riðils Meistaradeildar Evrópu í Þrándheimi í kvöld. Þar með er Kolstad úr leik í Meistadeildinni á tímabilinu.
Fyrirliðinn Sigvaldi Björn skoraði...
Stjarnan hefur tilkynnt að Sverrir Eyjólfsson muni taka við þjálfun karlaliðsins að loknu yfirstandandi tímabili. Honum til aðstoðar sem spilandi aðstoðarþjálfari verður fyrirliðinn Tandri Már Konráðsson. Báðir eru þeir uppaldir Stjörnumenn.
Sverrir hefur verið aðstoðarþjálfari Hrannars Guðmundssonar, sem lætur af...
„Mér líður mjög vel. Ég er svo glöð að vera komin í úrslit,“ sagði Embla Steindórsdóttir, leikmaður Hauka, í samtali við handbolta.is eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitum Powerade bikarsins með sigri á Fram í kvöld.
Embla var...
Harpa María Friðgeirsdóttir, fyrirliði Fram, var að vonum svekkt eftir að liðið tapaði 32:29 fyrir Haukum í undanúrslitum Powerade bikars kvenna í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld. Leikurinn var jafn og spennandi lengi vel.
„Já, þetta var hörkuleikur. Ótrúlega...
„Þetta er bara léttir. Ég var mjög stressuð fyrir þennan leik. Við unnum þær frekar stórt í deildinni sem er alltaf frekar hættulegt en já, léttir er það fyrsta sem ég hugsa,“ sagði Sara Sif Helgadóttir, markvörður Hauka, eftir...
Haukar leika til úrslita í bikarkeppninni í handknattleik á laugardaginn eftir sigur á Fram, 32:29, í stórskemmtilegri viðureign í undanúrslitum á Ásvöllum í kvöld. Staðan var jöfn í hálfleik, 14:14. Þetta verður í 11. sinn sem Haukar leika til...
Danska liðið GOG tryggði sér í kvöld sæti í fyrstu umferð útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla með því að gera jafntefli gegn Eurofarm Pelister frá Norður-Makedóníu, 28:28, í 12. umferð B-riðils í Danmörku í kvöld.
GOG er í sjötta...
Leikið verður til úrslita í bikarkeppni yngri flokka í Kuehne+Nagel-höllinni, Ásvöllum föstudaginn, laugardaginn og sunnudaginn. Hér fyrir neðan er leikjadagskráin eins og hún er á vef HSÍ eftir hádegið í dag, miðvikudag.
Föstudagur 27. febrúar:4. flokkur kvenna: Valur - ÍBV,...