Deildarmeistarar Vals náðu að vinna HK eftir framlengingu í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld, 42:38. Staðan var jöfn, 31:31, eftir venjulegan leiktíma. Valur skoraði tvö síðustu mörkin og kreisti út framlengingu....
Úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik, 8-liða úrslit, hófst í kvöld. Leikmenn ÍBV og KA ríðu á vaðið í Vestmannaeyjum klukkan 18. Hálfum öðrum tíma síðar mættust Valur og HK í N1-höllinni á Hlíðarenda.
Hægt var að fylgjast með leikjum kvöldsins...
Eftir tvær framlengingar vann KA lið ÍBV með eins marks mun í fyrsta leik úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik í Vestmannaeyjum í kvöld, 34:33. Eyjamenn náðu tveimur sóknum á síðustu mínútu síðari framlengingarinnar til þess að jafna metin og...
Vonir TMS Ringsted á sæti í úrslitakeppni átta efstu liða dönsku úrvalsdeildarinnar dofnuðu verulega þegar liðið tapaði fyrir lærisveinum Arnórs Atlasonar í TTH Holstebro, 31:30, á heimavelli í næstsíðustu umferð deildarinnar í kvöld.
Holstebro eygir möguleika á fjórða sætinu eftir...
Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld fóru sérfræðingar þáttarins, Einar Ingi Hrafnsson og Rakel Dögg Bragadóttir, ítarlega yfir úrslitakeppni Olísdeildar karla þar sem barist verður til þrautar um Íslandsmeistaratitilinn.
Í fyrstu umferð úrslitakeppninnar þarf aðeins tvo sigra til þess að...
Þýska stórveldið THW Kiel hefur samið við þýska vinstri hornamanninn Vincent Büchner um að leika með liðinu frá næsta sumri. Kemur hann frá TSHV Eisenach og mun leysa Danann Magnus Landin af hólmi.
Landin gengur til liðs við danska stórveldið...
„Tilfinningin er mjög góð. Við erum mjög ánægðir með vegferðina sem við erum á. Strákarnir eiga mikið hrós skilið fyrir vinnusemina og eljuna sem þeir hafa lagt í verkefnið síðastliðin tvö ár,“ segir Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari karlaliðs Víkings Reykjavíkur,...
Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var úrvalslið deildarkeppni Olísdeildar kvenna valið. Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals, var þar útnefnd besti leikmaður tímabilsins 2025/2026.
Hafdís átti stórbrotið tímabil, var oft og tíðum með yfir 50% markvörslu í leik og var þegar...
Ólafur Andrés Guðmundsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna að yfirstandandi tímabili loknu. Sænska félagið HF Karlskrona tilkynnti nýverið að Ólafur Andrés myndi fara frá félaginu í sumar þegar samningur hans rennur út.
Í samtali við Handkastið staðfesti Ólafur...
Elín Klara Þorkelsdóttir hafnaði í öðru sæti yfir markahæstu leikmenn sænsku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu og var aðeins einu marki á eftir markahæsta leikmanninum.
Elín Klara skoraði sjö mörk fyrir IK Sävehof í 32:30 tapi fyrir Skara HF í lokaumferð deildarinnar...
Handknattleikssambandið stendur fyrir blaðamannafundi klukkan 13 í húsnæði Arion banka í Borgartúni. Á fundinum tilkynnir Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna...