- Auglýsing -
- Auglýsing -

Monthly Archives: March, 2026

Færeyingar mæta Bosníumönnum – úrslit forkeppni HM og umspil

Færeyingar mæta Bosníumönnum í umspilsleikjum heimsmeistaramóts karla í handknattleik upp úr miðjum maí. Bosnía vann Kósovó samanlagt, 66:54, í tveimur viðureignum forkeppninnar sem lauk í dag. Kósovóbúar unnu síðari viðureignina í Pristina í dag, 33:29. Það dugði skammt eftir...

Hörður vann í Eyjum og mætir Gróttu í umspili

Hörður færðist upp fyrir Fjölni í lokastöðu Grill 66-deildar karla með sigri á ungmennunum í HBH, 35:31, í Vestmannaeyjum í dag. Ísfirðingar voru þremur mörkum yfir í hállfeik, 20:17.Harðarmenn mæta þar með Gróttu í undanúrslitum umspils Olísdeildar karla. Fjölnismenn...

HK í Olísdeild kvenna á ný – Grótta í umspilið

HK varð í kvöld deildarmeistari í Grill 66-deild kvenna í handknattleik og leikur þar með í Olísdeild kvenna á næsta keppnistímabili. HK-liðinu varð ekkert á í lokaumferðinni í kvöld og vann öruggan sigur á Fjölni, 31:20, í Kórnum í...

Tíu marka sigur Fram í síðasta deildarleiknum

Fram vann öruggan sigur á KA/Þór í næstsíðasta leik Olísdeildar kvenna í handknattleik á þessari leiktíð, 35:25. Leikið var í Lambhagahöll Fram í Úlfarsárdal. Þremur mörkum skakkaði á liðunum þegar fyrri hálfleikur var að baki, 15:12, Fram í hag....

Framúrskarandi fyrri hálfleikur Þjóðverja

Þýska landsliðið undir stjórn Alfreðs Gíslasonar vann egypska landsliðið öðru sinni á fjórum dögum í vináttulandsleik að viðstöddum 95.00 áhorfendum í ÖVB-Arena í Brimum í dag, 34:33. Þýska liðið lék frábærlega í fyrri hálfleik og hafði sex marka forskot...

Þórir hefur störf hjá Olympiatoppen

Þórir Hergeirsson hefur verið í ráðgjafastarfi hjá Olympiatoppen í Noregi. Þórir er ráðinn í hlutastarf og mun sameina það núverandi stöðu sinni sem faglegur ráðgjafi hjá Handknattleikssambandi Íslands, auk þess sem hann rekur eigið ráðgjafafyrirtæki. Frá þessu segir TV2...

Dagskráin: Spenna ríkir fyrir lokumferð Grill 66-deildar kvenna

Síðasta umferð Grill 66-deildar kvenna verður leikin í kvöld. Mikil spenna ríkir í toppbaráttunni. HK stendur best að vígi. Liðið hefur tveggja stiga forskot á Gróttu en þarf að fá a.m.k. annað stigið út viðureign við Fjölni í Kórnum...

Myndasyrpa úr Kaplakrika: Ísland – Svíþjóð 27:30

Hátt í 2.000 áhorfendur fylltu íþróttahúsið í Kaplakrika í gær þegar landslið Íslands og Svíþjóðar mættust öðru sinni í vináttuleik í handknattleik karla. Eftir því sem næst verður komist var þetta fyrsti leikur A-landsliðs karla í Kaplakrika síðan 23....

„Ómögulegt að segja hvað verður“

Næsta verkefni íslenska karlalandsliðsins verður í maí þegar liðið mætir Egyptalandi í tveimur vináttulandsleikjum í Kaíró. Tveimur vináttulandsleikjum gegn Svíþjóð í vikunni sem er að líða lauk báðum með tapi Íslands. „Ég held að það verði gaman á móti öðru...

„Það nærir meira að vinna leiki“

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, var á því að síðari vináttulandsleikur Íslands við Svíþjóð í Kaplakrika í kvöld hafi verið áþekkur þeim fyrri á fimmtudagskvöld. Báðir leikir töpuðust, sá fyrri með tveimur mörkum og sá síðari með þremur. „Þessi...
- Auglýsing -

Nýjustu fréttir

Arnór vann gífurlega mikilvægan sigur

Arnór Þór Gunnarsson, þjálfari Bergischer HC, stýrði sínum mönnum til afar mikilvægs sigurs í fallbaráttu þýsku 1. deildarinnar í...
- Auglýsing -