Vafalítið geta ekki mörg 45 manna þorp í heiminum státað af því að eiga þrjá landsliðsmenn á sama tíma. Það getur færeyska þorpið Válur á Straumey gert. Þrír leikmenn af 16 í U21 árs landsliðs Færeyinga í handknattleik, sem nú tekur þátt í heimsmeistaramótinu í Pólland, eru frá Válur sem er hluti af sveitarfélaginu Kvívík. Þeir eru Eyðbjørn Heini Danielsen, Óla Jákup Gaard Olsen og Aleksandar Lacok.
Frá þessu segir á færeyska vefnum in.fo.
Þrátt fyrir að Válur eigi þrjá leikmenn í U21 árs landsliðinu í handknattleik karla þá er ekki stundaður handknattleikur í þorpinu. Þeir sem áhuga hafa á að æfa íþróttina verða að bregða sér yfir til Vestmanna og æfa með VÍF. Stutt er að fara því aðeins eru um 100 metrar frá Válur til Vestmanna.