Tumi Steinn Rúnarsson lék einkar vel með HSC Coburg í kvöld þegar liðið vann Hüttenberg með fimm marka mun, 32:27, í þýsku 2. deildinni í handknattleik. Hann skoraði þrjú mörk en átti alls níu stoðsendingar. Coburg færðist upp um eitt sæti, upp í 12. sæti af 20 liðum deildarinnar með þessum ágæta sigri á útivelli.
Örn Vésteinsson Östenberg og samherjar hans í TuS N-Lübbecke töpuðu óvænt fyrir Dormagen, 30:25, í Bayer Sportcenter. Vitað er að leikmenn Dormagen eru skeinuhættir en þeir eru engu að síður neðar staðsettir í stöðunni í 2. deild auk þess sem liðsmenn Lübbecke hafa verið nær ósigrandi síðustu vikur.
Örn skoraði ekki mark í leiknum. TuS N-Lübbecke er eftir sem áður í öðru sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir Balingen-Weilstetten sem trónir á toppnum. Balingen á leik til góða sem fram fer á morgun. Eisenach er þriðja sæti fjórum stigum á eftir TuS N-Lübbecke og á leik til góða.
Liðsmenn HC Motor töpuðu fyrir Bietigheim með þriggja marka mun, 29:26. Roland Eradze er aðstoðarþjálfari HC Motor og Íslandsvinurinn Gintaras Savukynas er þjálfari. HC Motor er í 17. sæti af 20 liðum.