Lið íslenskra handknattleiksmanna áttu á brattann að sækja í öllum fjórum viðureignum fyrri umferðar umferðar útsláttarkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik í kvöld. Öll hin svokölluðu Íslendingalið töpuðu leikjum sínum og eiga erfið verkefni fyrir höndum þegar síðari viðureignirnar fara fram eftir viku.
Kristján Örn Kristjánsson og samherjar í danska úrvalsdeildarliðinu Skanderborg AGF töpuðu með sex marka mun á heimavelli fyrir Flensburg, 38:32. Flensburg vann Evrópudeildina á síðasta tímabili.
Kristján Örn, Donni, skoraði eitt mark í leiknum.
Einar Bragi Aðalsteinsson og liðsfélagar í IFK Kristianstad töpuðu á heimavelli fyrir króatíska liðinu RK Nexe, 36:34. Einar Bragi skoraði tvö mörk fyrir sænsku bikarmeistarana.
Reynir Stefánsson formaður dómaranefndar HSÍ var eftirlitsmaður á leiknum í Kristianstad Arena.
Óvænt úrslit í Middelfart
Óvæntustu úrslit kvöldsins var sex marka tap þýska liðsins MT Melsungen í heimsókn til Fredericia HK, 35:29, í Middelfart Sparekasse Arena. Fredericia HK hefur komið skemmtilega á óvart í Evrópudeildinni í vetur á sama tíma og liðið hefur verið í mesta basli í dönsku úrvalsdeildinni og rétt slapp inn í átta liða úrslitin um danska meistaratitilinn.
Reynir Þór Stefánsson skoraði eitt mark fyrir MT Melsungen. Arnar Freyr Arnarsson skoraði ekki mark og virtist lítt hafa komið við sögu.
Tryggvi Þórisson og leikmenn norska meistaraliðsins Elverum fengu skell í heimsókn til Montpellier í Frakklandi, 36:24. Tryggvi skoraði tvö mörk fyrir Elverum.
Sigurliðin úr þessum fjórum rimmum komast í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar þar sem sigurliðin fjögur í riðlakeppni 16-liða úrslita bíða.


