Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson, leikmaður Fjölnis, er markakóngur Grill 66 deildar karla tímabilið 2025/2026. Hann skoraði 161 mark í 21 leik, 20 mörkum fleiri en næsti maður, Endijs Kusners hjá Herði.
Kusners var með 141 mark í 20 leikjum og nokkuð skammt undan var Ísak Óli Eggertsson úr Víkingi Reykjavík með 134 mörk í 22 leikjum.
Hinn 15 ára gamli Brynjar Narfi Arndal, bráðefnilegur leikmaður FH, er á meðal markahæstu leikmanna með 99 mörk í aðeins 14 leikjum fyrir venslafélagið ÍH.
Listann yfir 25 markahæstu leikmenn Grill 66 deildar karla er að finna hér fyrir neðan:
Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson, Fjölni, 161.
Endijs Kusners, Herði, 141.
Ísak Óli Eggertsson, Víkingi, 134.
Bjarki Jóhannsson, ÍH, 133.
Logi Finnsson, Val 2, 133.
Jose Esteves Lopes Neto, Herði, 132.
Hákon Garri Gestsson, Selfoss 2, 128.
Gunnar Hrafn Pálsson, Gróttu, 127.
Daníel Wale Adeleye, Haukum 2, 123.
Örn Alexandersson, HK 2, 122.
Sigurður Páll Matthíasson, Víkingi, 121.
Kristófer Stefánsson, HK 2, 114.
Max Emil Stenlund, Fram 2, 114.
Tómas Bragi Lorriaux Starrason, Gróttu, 110.
Daníel Máni Sigurgeirsson, Haukum 2, 109.
Ívar Bessi Viðarsson, HBH, 106.
Ingibert Snær Erlingsson, HK 2, 103.
Kristófer Snær Þorgeirsson, Víkingi, 103.
Brynjar Narfi Arndal, ÍH, 99.
Helgi Marinó Kristófersson, Haukum 2, 99.
Shuto Takenaka, Herði, 98.
Hinrik Hugi Heiðarsson, HBH, 97.
Sigurður Atli Ragnarsson, Val 2, 93.
Antoine Óskar Pantano, Gróttu, 91.
Arnþór Sævarsson, Fram 2, 88.
Heimild: HBStatz.



