- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Adam hefur samið til eins árs í viðbót

Adam Thorstensen markvörður Stjörnunnar. Ljósmynd/Stjarnan
- Auglýsing -


Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur gengið frá samningi við markvörðinn Adam Thorstensen til ársins 2026. Adam hefur verið lykilleikmaður í liði Stjörnunnar síðustu ár en liðið lék m.a. til úrslita í Poweradebikarnum í byrjun mars.

„Adam hefur sýnt það síðustu ár að hann sé einn besti markmaður deildarinnar og erum við gríðarlega ánægð að hann ætli að taka slaginn með okkur áfram. Adam og Sigurður Dan hafa myndað eitt besta markvarðarpar deildarinnar og það verður gaman að sjá þá vaxa og dafna á næsta tímabili,” segir Hrannar Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar í tilkynningu.


Adam gekk til liðs við Stjörnuna frá ÍR fyrir tímabilið 2020/2021 og er því á leið inn í sitt sjötta tímabil í Garðbænum. Adam varði að meðaltali 9,2 skot í leik á síðasta tímabili, rúmlega 30% hlutfallamarkvarsla.

Adam glímdi við eftirköst af höfuðhöggi undir lok tímabils og gat ekki tekið þátt í síðustu leikjum tímabilsins. Adam er hinsvegar búinn að jafna sig af þeim meiðslum og byrjaður að æfa með liðinu.


„Mér líst vel á næsta tímabil. Við erum með ungt lið í bland við reynslu og ekki skemmir fyrir að vera á leiðinni í smá Evrópuævintýri. Ég ákvað að framlengja þar sem ég hef trú á verkefninu hér í Garðabæ og ekki skemmir fyrir hvað hópurinn er góður og fólkið i kring,” sagði er haft eftir Adam í tilkynningu Stjörnunnar.

Adam var einn þriggja markvarða U21 árs landsliðsins sem hafnaði í 3. sæti á HM fyrir tveimur árum. Hann æfði um tíma með þýska liðinu Gummersbach á síðasta sumri.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -