Handknattleiksmarkvörðurinn Adam Thorstensen hefur samið við þýska liðið VfL Lübeck-Schwartau og gengur til liðs við félagið í sumar. Adam hefur staðið vaktina í marki Stjörnunnar frá árinu 2020 er hann kom frá ÍR.
VfL Lübeck-Schwartau er sem stendur í 10. af 18 liðum næstefstu deildar með 21 stig eftir 19 leiki.
Adam verður a.m.k. fimmti Íslendingurinn til þess að leika með VfL Lübeck-Schwartau er með bækistöðvar í Bad Schwartau í Slésvík-Holtsetalandi í norðurhluta Þýskalands.
Sigtryggur Daði Rúnarsson, leikmaður ÍBV, lék með VfL Lübeck-Schwartau frá 2018 til 2020. Örn Vésteinsson Östenberg var leikmaður félagsins 2023/2024.
Áður hét liðið Bad Schwartau og þá lék Sigurður Bjarnason með liðinu frá 1997 til 1999 og Sigursteinn Arndal tímabilið 2004/2005 og var fyrirliði.


