- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Aðeins Gidsel stendur Hauki framar

- Auglýsing -

Haukur Þrastarson hefur átt frábært fyrsta tímabil með liði sínu Rhein-Neckar Löwen í þýsku 1. deildinni. Haukur er stoðsendingahæstur í deildinni með 149 stoðsendingar í 27 leikjum. Gísli Þorgeir Kristjánsson hjá SC Magdeburg er næst stoðsendingahæstur með 126 í 27 leikjum.

Sömuleiðis skorar Haukur mikið og er níundi markahæsti leikmaður þýsku deildarinnar með 154 mörk. Samtals hefur hann því komið að 303 mörkum með beinum hætti til þessa.


Markahæstur í deildinni er Daninn Mathias Gidsel með 244 mörk í 27 leikjum fyrir Füchse Berlín en þriðji markahæstur er Ómar Ingi Magnússon hjá SC Magdeburg með 188 mörk í 27 leikjum.

Það þýðir að einungis Gidsel hefur komið að fleiri mörkum með beinum hætti en Haukur. Gidsel hefur gefið 122 stoðsendingar og er því í töluverðum sérflokki á toppnum yfir flest mörk og stoðsendingar samtal, með 366.

Tölfræðisíða þýsku 1. deildarinnar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -