Nýliðið Evrópumót karla í handknattleik var það næstvinsælasta í sögunni, sé eingöngu litið til aðsóknar á leiki. Alls seldust um 660 þúsund aðgöngumiðar að leikjum mótsins. Aðeins EM 2024 í Þýskalandi var betur sótt en rúmlega ein milljón aðgöngumiða seldist þá. Keppnishallirnir í Þýskalandi voru stærri og áhugi almennings meiri fyrir að sækja kappleiki með öðrum landsliðum en heimaliðum á hverjum keppnisstað.
Fram kemur að 85% aðgöngumiða hafi selst á leiki EM 2026. Best var aðsóknin á viðureignir sem fram fóru í Jyske Bank Boxen í Herning hvar danska og þýska landsliðin voru með bækistöðvar frá byrjun til enda. Uppselt mátti heita á alla leikdaga mótsins í Herning; í riðlakeppni, milliriðla svo ekki sé minnst á úrslitahelgina, eins og Íslendingar fengu m.a. að finna fyrir.

Miðaframboð
Hvergi kemur fram í tilkynningu EHF að til standi að breyta framboði miða á úrslitahelgi Evrópumótsins með því m.a. að taka frá ákveðinn fjölda miða fyrir þær þjóðir sem komast í undanúrslit.
Fram kemur í tilkynningu frá EHF að mikill áhugi hafi verið fyrir útsendingum sjónvarps frá leikjunum, ekki síst í Danmörku og Þýskalandi þar sem milljónir hafi setið við viðtæki sín.
Áður hefur verið fjallað um mikinn áhuga fyrir útsendingum hér á landi sem sló fyrri met.
Metáhorf hjá RÚV á undanúrslitaleik Íslands og Danmerkur
Fyrsta fimm þjóða mótið
Næst á dagskrá er Evrópumót kvenna sem haldið verður frá 3. til 20. desember á þessu ári í Póllandi, Rúmeníu, Tékklandi, Slóvakíu og Tyrklandi. Verður það fyrsta Evrópumótið sem haldið verður í fimm löndum. Þjóðirnar tóku saman höndum á síðasta ári um að halda mótið eftir að það var tekið úr höndum Rússa.
Íberíuskaginn og Sviss
EM karla fer næst fram í Portúgal, Spáni og Sviss 13. til 30. janúar 2028.


