Á sumum handboltaleikjum í Evrópu eru leikmenn með grímu þegar þeir sitja á varamannabekknum vegna reglna um covid19. Franska landsliðskonan Meline Nocandy fékk skyndilega skipun frá þjálfara sínum að fara inn á leikvöllinn þegar Metz sótti CSM Bucaresti heim í Meistaradeild kvenna. Hún ætlaði að hlaupa inn á með grímuna. Emmanuel Mayonnade, þjálfari Metz, tók eftir grímunni á elleftu stundu eins og sést á þessu skondna myndskeiði.
- Auglýsing -