- Auglýsing -

Ætlum að fá eins mikið úr þessu og mögulegt er

- Auglýsing -


Landslið Íslands í handknattleik karla, skipað leikmönnum 19 ára og yngri, hefur keppni á Opna Evrópumótinu sem hefst í Gautaborg í Svíþjóð á mánudaginn. Þátttaka í mótinu er annað af tveimur verkefnum 19 ára landsliðsins í sumar. Í byrjun ágúst tekur liðið þátt í heimsmeistaramótinu sem að þessu sinni fer fram í Kaíró í Egyptalandi.


Heimir Ríkarðsson er þjálfari 19 ára landsliðsins ásamt Maksim Akbachev. „Mótið sem stendur yfir í viku verður undirbúningur fyrir HM. Við náum mörgum leikjum á þeim tíma og fáum góðan tíma saman. Við ætlum að reyna að fá eins mikið úr þessu verkefni og mögulegt er,“ segir Heimir þegar handbolti.is hitti hann að máli fyrir brottför til Svíþjóðar.

Íslenska liðið verður með Egyptum, Spánverjum, Portúgölum, Litaáum og Eistum í riðli á Opna Evrópumótinu og mætir tveimur fyrstnefndu þjóðunum strax fyrsta daginn. Leikirnir á mótinu verða 2×20 mínútur.


„Ég hef fulla trú á þessum strákum,“ segir Heimir en á síðasta ári þá varð þessi hópur í fjórða sæti á Evrópumótinu í Svartfjallalandi. „Við verðum að ná upp varnarleiknum hjá okkur. Ef það tekst náum við fínum úrslitum,“ segir Heimir Ríkarðsson annar þjálfara U19 ára landsliðs karla.

Lengra viðtal við Heimir er að finna í myndskeiði hér fyrir ofan.

Leikir Íslands á Opna Evrópumótinu í Gautaborg:
30. júní: Egyptaland - Ísland.
30. júní: Íslandi - Spánn.
1. júlí: Ísland - Pólland.
1. júlí: Eistland - Ísland.
2. júlí: Litáen - Ísland.
Áfram verður leikið 3. og 4. júlí. Hverjir andstæðingarnir verða skýrist af árangri í riðlakeppninni.
Í hinum riðli mótsins eiga sæti landslið frá Svíþjóð, Króatíu, Færeyjum, Hollandi og Finnlandi.

Ísland í sterkum riðli á Opna EM 19 ára landsliða

Ísland í fjögurra heimsálfu riðli á HM 19 ára landsliða

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -