- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Olís kvenna: Línur nokkuð skýrar en hart barist við botninn

- Auglýsing -

Þegar tvær umferðir eru óleiknar í Olísdeild kvenna á tímabilinu eru línur orðnar ansi skýrar. Þó er ekki víst hvort Stjarnan eða Selfoss falli beint niður í Grill 66 deildina og hvort þeirra fer í umspil enda barátta liðanna tveggja hörð.

Selfoss er í sjöunda sæti með sex stig og Stjarnan er á botninum með fimm stig. Selfoss komst upp fyrir Stjörnuna með sigri í viðureign liðanna í síðustu umferð, þeirri nítjándu.

Staðan í deildinni:

SætiFélagLeikirSJTStig
1Valur19170234
2ÍBV19150430
3Haukar19111723
4ÍR19110822
5Fram19811017
6KA/Þór19711115
7Selfoss1930166
8Stjarnan1921165


Þegar er ljóst að Valur er deildarmeistari og fer beint í undanúrslit úrslitakeppninnar um Íslandsmeistaratitilinn. ÍBV hafnar í öðru sæti og fylgir Valskonum beint í undanúrslitin.

Barist um þriðja og fimmta sætið

Fjögur lið í sætum þrjú til sex hafa þá tryggt sæti sín í fyrstu umferð úrslitakeppninnar; Haukar, ÍR, Fram og KA/Þór. Ýmislegt getur þó enn breyst í þeirri baráttu þar sem Haukar og ÍR berjast um þriðja sætið og Fram og KA/Þór berjast um fimmta sætið.

Þó er ljóst að Haukar og ÍR hafa þegar tryggt sér heimavallarréttinn í viðureignum sínum gegn Fram og KA/Þór í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

20. umferð Olísdeildar kvenna fer fram í heild sinni á miðvikudagskvöldið 18. mars og lokaumferðin fer svo fram aðeins þremur dögum síðar, laugardaginn 21. mars. Í síðustu tveimur umferðunum er von á nokkrum æsispennandi viðureignum.

20. umferð 18. mars:

Sethöllin: Selfoss – Haukar, kl. 18.
Hekluhöllin: Stjarnan – Fram, kl. 18.
Vestmannaeyja: ÍBV – ÍR, kl. 18.
KA-heimilið: KA/Þór – Valur, kl. 18.

21. umferð 21. mars:

N1-höllin: Valur – ÍBV, kl. 14.
Lambhagahöllin: Fram – KA/Þór, kl. 14.
Skógarsel: ÍR – Selfoss, kl. 14.
Kuehne+Nagel höllin: Haukar – Stjarnan, kl. 14.

Staðan og næstu leikir í Olísdeild kvenna.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -